Útgefandi: Miðstöð um auðlesið mál, 2025
6.1 Auðlesnir textar eru listar. Dragið skýringar og dæmi inn
Auðlesnir textar flæða ekki eins og hefðbundnir textar heldur eru þeir listar. Sú uppsetning er til þess gerð að mörk milli málsgreina og þar með setninga séu sem skýrust. Á sama tíma getur hún leyst upp það sem bindur textann saman. Þessi tengsl setninga verða svo enn fremur veikari þar sem tengingar á borð við fornöfn og samtengingar vantar.
Innri vensl textans verður því að gera skýr með öðrum hætti og nota má listaformið til þess að gera framgang textans ljósan. Það er gert með því að hafa skýringar og dæmi inndregin:
a) Þú þarft að mæta fyrir rétt.
Þú hefur kannski gefið skýrslu áður.
Til dæmis:
§ Hjá lögreglunni.
§ Eða fyrir rétti.
§ Eða hjá saksóknara.
§ Eða í fyrri máls·meðferð
Þú þarft samt að mæta fyrir rétt.
Það er mjög mikilvægt.
Framgangur textans er hér ljós. Lesandi sér um leið hvar útskýring og dæmi byrja og hvenær þeim lýkur og megintextinn heldur áfram.
6.2 Notið steinskriftarleturgerðir (sans serif)
Það hafa lengi verið viðtekin sannindi að steinskriftarletur (sans serif) á borð við Arial og Helvetica séu læsilegri en þverendaletur (serif) eins og Times New Roman eða Garamond. Steinskriftarletur er ráðandi í hinum stafræna heimi þar sem það þótti læsilegra á skjám með lága upplausn og þykir það almennt nútímalegt og létt. Þverendaletrin þykja fremur hefðbundin og komu betur út á prenti en á skjá þar sem þverendarnir gátu truflað augað og gert stafina óskýra. Rannsóknir með lesblindum hafa sýnt að þeir kjósa fremur steinskriftarletur.
Þetta er dæmi um þverendaletrið Garamond.
Þetta er dæmi um þverendaletrið Baskerville.
Þetta er dæmi um þverendaletrið Times New Roman.
Þetta er dæmi um steinskriftarletrið Arial.
Þetta er dæmi um steinskriftarletrið Futura.
Þetta er dæmi um steinskriftarletrið Helvetica.
6.3 Leturstærð og línubil
Leturstærð í auðlesnum texta skal að jafnaði vera 120% af leturstærð frumtextans, en þó aldrei minna en 14 punktar. 16 punktar eru æskileg leturstærð.
Línubil skal vera 1,5.
6.4 Markið áherslur með feitletrun eða undirstrikun
Ekki er mælt með skáletrun, ritun í hástöfum eða notkun ólíkra leturgerða í auðlesnum textum. Allt getur þetta gert lesendum erfitt að bera kennsl á stafi og orð og því verið truflandi. Fyrir vikið skal einungis nota feitletrun eða undirstrikun til áhersluauka í auðlesnum textum.
6.5 Skiptið línum eftir setningarliðum
Aldrei skal skipta orðum milli lína:
a) Slæmt: Síðasta ferðin til Tenerife var skemmti-
leg.
Taki málsgrein meira en eina línu skal hefja nýja línu á heilu orði:
b) Betra: Síðasta ferðin til
Tenerife var skemmtileg.
Hér má þó enn gera betur og styðjast við rannsóknir á textun myndefnis. Það getur verið krefjandi fyrir meðallesandann að lesa texta við myndefni. Textinn birtist aðeins í tiltekinn tíma á skjánum og þarf lesandinn því að laga leshraða sinn að því. Það er sjaldnast hægt að lesa textann oftar en einu sinni auk þess sem augað leitar sífellt í burtu til að taka inn atburðarásina á skjánum. Það er því mikið lagt á sjónskynið.
Rannsóknir hafa sýnt að það er auðveldara að meðtaka textann sé honum skipt eftir setningarliðum:
c) Nafnliður: „Síðasta ferðin “
d) Forsetningarliður: „til Tenerife“
e) Sagnliður: „var skemmtileg“
Hafa verður í huga að það getur verið mikill munur á því hvernig vanir og óvanir lesendur taka inn texta. Það er því ekki alltaf hægt að gera ráð fyrir að það sem gagnist vönum lesendum gagnist öðrum líka. En þar til annað kemur í ljós má gera ráð fyrir að skipting málsgreina milli lína með þessum hætti sé hjálpleg eða í það minnsta ekki óhjálpleg.
Í auðlesnum texta væri málsgreininni skipt milli lína með eftirfarandi hætti:
f) Síðasta ferðin
til Tenerife var skemmtileg.
Eða:
g) Síðasta ferðin til Tenerife
var skemmtileg.
6.6 Notkun mynda
Myndir eru tákn sem þjóna ólíkum miðlunarhlutverkum í textum og líkjast ávallt því sem þær tákna. Það er hvað skýrast hvað varðar ljósmyndir en þó kort og teikningar séu stílfærðar eru líkindin samt ljós. Það sama á við um gröf sem tákna til að mynda tiltekin hlutföll sem og skýringarmyndir. Allt auðveldar þetta lesanda að skilja texta.
Í auðlesnum textum gegna myndir því hlutverki að gera flókin hugtök skýrari og skiljanlegri með því að sýna mikilvægar upplýsingar með öðrum hætti en með orðum. Myndir í auðlesnum textum eru ekki til þess að fegra eða skreyta textann heldur til að styðja við upplýsingamiðlun og skilning lesenda. Myndir má sem dæmi nota samhliða millifyrirsögnum til að draga fram það sem mestu máli skiptir í textanum og tryggja að það fari ekki fram hjá neinum. Ávallt skal gæta þess að tilskilin leyfi og réttur til notkunar mynda liggi fyrir.
Það er ekki létt verk að miðla mikilvægum upplýsingum á margvíslegan hátt. Gæta verður þess að nota myndir bæði markvisst og faglega. Víða um heim ber þó á því að hlutir, staðreyndir og atburðir séu táknaðir með einfeldningslegum teikningum.

Að spila fótbolta
Hér er það „að spila fótbolta“ táknað með mynd. Myndin lítur út fyrir að vera fengin úr litabók fyrir börn: einfeldningsleg. „Að spila fótbolta“ er ekki flókin hugmynd eða fyrirbæri. Þar af leiðandi er teikningin ekki höfð með í þessu tilfelli til að auka skilning heldur til skreytingar. Þetta gerist oft með auðlesna texta: það eru ekki flóknu hugtökin sem eru sýnd með myndum heldur þau sem auðvelt er að sýna með myndum. Möguleikar þess að miðla með margvíslegum hætti eru langt frá því nýttir til fulls með þessu.
Í eftirfarandi dæmi er erfðarétti lýst með orðum, mynd og kökugrafi. Þetta er flókið efni sem krefst í það minnsta grunnskilnings á hlutum og hlutföllum. Án skilnings á því er ekki hægt að skilja efnið í heild, þ.e.a.s. hver erfir hvað og hve mikið. Þessi framsetning er því fyllilega viðeigandi, skýringarmyndin er skýr, auðvelt er að prenta hana og ljósrita og hún er hvorki einfeldningsleg né barnaleg:

Siggi og Jóna voru gift.
Siggi og Jóna áttu 4 börn.
Nú er Siggi dáinn.
Jóna erfir helminginn af því sem Siggi átti.
Börnin erfa hinn helminginn.
Börnin skipta arfinum jafnt.
Hvert barn fær 1/8 af því sem Siggi átti.
Foreldrar Sigga erfa ekkert.
Elín var systir Sigga.
Elín erfir ekkert.