Útgefandi: Miðstöð um auðlesið mál, 2025
2.1 Greinarmerki
Í auðlesnum textum má nota eftirfarandi greinarmerki: punkt, spurningarmerki, upphrópunarmerki, tvípunkt, tilvitnunarmerki, bandstrik og miðjupunkt.
2.1.1 Punktur, spurningar- og upphrópunarmerki
Hver málsgrein í auðlesnum texta inniheldur eina setningu. Málsgreinar eru aðgreindar með punkti og hver málsgrein hefst í nýrri línu. Þegar málsgreinar innihalda aðeins eina setningu er hvorki aukasetningar né upptalningar að finna og komma því óþörf. Kommur eru ekki notaðar í auðlesnum textum.
Setningar geta hins vegar falið í sér spurningar eða upphrópanir. Spurningar koma oft fyrir í leiðbeiningum og upplýsingatextum á auðlesnu máli og eru að sjálfsögðu táknaðar með spurningarmerki:
a) Hvað eru skilríki?
Skilríki eru kort eða skjal með upplýsingum um þig.
Skilríki eru notuð til að sanna hver þú ert.
Þar sem auðlesnir textar eru ekki bara til fræðslu eða upplýsinga heldur af ýmsu tagi má líka nota upphrópunarmerki til að marka tjáningu í auðlesnum textum:
b) Það gleður mig að heyra!
2.1.2 Tvípunktur
Tvípunktur kemur oft fyrir auðlesnum texta. Tvípunktur er notaður til að draga athygli að tilteknu atriði eða hefja upptalningar:
c) Þetta skaltu hafa með þér í flugið:
Farmiði
Vegabréf
Handfarangur
Tvípunktur sendir skýr skilaboð um að veita því sem á eftir kemur sérstaka athygli. Dæmi um þetta er í kaflanum hér á undan: Í vafatilfellum hefur skiljanleiki ávallt forgang, þar sem tvípunkti fylgir nánari skýring á því sem sagt var.
2.1.3 Tilvitnunarmerki
Tilvitnunarmerki (gæsalappir) eru notuð til að afmarka beina ræðu í auðlesnum texta og gefa til kynna breytingu á sjónarhorni. Óbein ræða á ekki heima í auðlesnum texta þar sem hún felur í sér flóknari setningagerð en ákjósanlegt er. Óbein ræða skal því færð yfir í beina ræðu og tilvitnunarmerki notuð þar sem það á við:
a) Sigurbjörg sagði að hún kæmi á morgun.
b) Sigurbjörg sagði:
„Ég kem á morgun.“
Gallinn við tilvitnunarmerkin í þessu samhengi er að þau gefa til kynna að viðkomandi hafi sagt hlutina orðrétt á þennan hátt. Sé það svo er viðeigandi að nota tilvitnunarmerki.
Það er þó ekki alltaf hægt að hafa orðrétt eftir í eins og næsta dæmi sýnir:
c) Frumtexti: Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur sent tilkynningu til fjölmiðla þar sem hann ítrekar meðal annars að Grindavík sé ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik. „Lögreglustjóri mælir alls ekki með því að íbúar dvelji í bænum. […] Þar dvelji enginn að næturlagi. […] Aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara. […] Þá er ekki hægt að útiloka að gossprunga geti opnast inn í Grindavík.“
Tilkynninguna sjálfa þarf að þýða yfir á auðlesið mál. Hún er því ekki lengur orðrétt og því ekki við hæfi að nota gæsalappir líkt og þessu dæmi:
d) Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur gefið út tilkynningu.
Tilkynningin fjallar um aðstæður í Grindavík.
Nálægt Grindavík hafa verið mörg eldgos.
Börn eiga alls ekki að vera í Grindavík.
Lögreglustjórinn segir:
„Fólk á ekki að vera í Grindavík.
Sérstaklega ekki á nóttunni.
Aðstæður geta nefnilega breyst mjög hratt.
Kannski verður eldgos í Grindavík.“
Það er einstakt við auðlesna texta að þeir geta innihaldið beina ræðu sem ekki er orðrétt. Til að fyrirbyggja misskilning og að leggja fólki orð í munn er hægt að draga beina ræðu inn til afmörkunar í stað tilvitnunarmerkja:
e) Auðlesið:
Lögreglustjórinn segir:
Fólk á ekki að vera í Grindavík.
Sérstaklega ekki á nóttunni.
Aðstæður geta nefnilega breyst mjög hratt.
Kannski verður eldgos í Grindavík.
2.1.4 Bandstrik
Hingað til hefur tíðkast að skipta löngum og flóknum orðum upp með bandstriki þegar auðlesnir textar eru útbúnir. Í þessari handbók er hins vegar lagt til að því verði hætt. Ástæður þess og aðrar leiðir til að auðvelda lesendum að greina löng orð í sundur verða reifaðar í næsta undirkafla, Miðjupunktur.
Í auðlesnum textum er orðum ekki skipt milli lína með bandstriki heldur færist orðið í heild sinni yfir í næstu línu.
Hefð er fyrir því í íslensku að nota bandstrik milli orðhluta eða -liða. Til dæmis:
Alabama-fylki
BA-ritgerð
7-menningarnir
Brennu-Njáll
Norður-Makedónía
Í samsettum orðum má nota bandstrik í auðlesnum textum.
Ekki skal nota bandstrik í stað orðliða til að forðast endurtekningu. Dæmi:
f) Í SS vínarpylsum er kinda-, svína- og nautakjöt.
g) Auðlesið:
Í SS vínarpylsum er:
Kindakjöt
Svínakjöt
Nautakjöt
2.1.5 Miðjupunktur
Miðjupunkturinn, „·“, er líklega stærsta og róttækasta breytingin sem lögð er til í þessari handbók. Bandstrikið hefur löngum verið eitt helsta einkennismerki auðlesinna texta þar sem það hefur verið notað til að skipta löngum, flóknum og ruglingslegum orðum upp í liði svo auðveldara sé að lesa þau. Lesendur taka texta inn í atkvæðum og stökum orðum, ekki bókstöfum, og aðgreining orðliða sem þessi auðveldar lestur textans:
Þátt-taka
Íslands-saga
Atkvæða-greiðsla
Utanríkis-ráðuneytið
Almenn regla hefur verið að skipta orðum upp þegar þau eru þrísamsett („Íslands-saga“) eða til að gera röð samhljóða skýrari („þátt-taka“). Frá þeirri reglu verður ekki vikið hér en miðjupuntur kemur í stað bandstriks:
Þátt·taka
Íslands·saga
Atkvæða·greiðsla
Utanríkis·ráðuneytið
2.1.5.1 Hvers vegna miðjupunktur?
Nú er um mikla breytingu að ræða og verður hún ekki gerð nema að vel ígrunduðu máli. Færa má rök fyrir því að engin þörf sé á breytingu og að bandstrikið þjóni þessu hlutverki vel.
Í ritreglum Árnastofnunar um bönd og strik segir: „Bandstrik er stundum notað ef það horfir til skýrleika eða til að aðgreina orðliði í samsetningum sem annars féllu saman og yrðu torkennilegir.“ Eftirfarandi dæmi eru gefin:
no-leikur
eða-merki
sísegul-hverfijárnsmælitæki
Það er ekki til neinn hlutlægur mælikvarði á hvað telst skýrt og hvað telst torkennilegt enda veltur það bæði á eðli og viðfangsefni texta sem og ætluðum lesendum þeirra. Hvergi er gerð ríkari krafa um skýrleika en í auðlesnum textum og er þessi regla því í raun gerð almenn.
Bandstrikið eykur skýrleika og samræmist ritreglum íslenskunnar. Til hvers þá að hætta þessari notkun og taka upp nýtt tákn, miðjupunktinn, í staðinn?
2.1.5.2 Lærdómur
Orðin í dæminu hér að ofan yrðu jafnvel vönustu lesendum til vandræða ef ekki væri fyrir bandstrikið. Fyrir vikið er bandstrikið orðið hluti af réttum rithætti þeirra. Það sem gerist hins vegar í auðlesnum textum er að orð sem alla jafna er ekki skipt upp eru rituð öðruvísi í auðlesnum textum en annars staðar:
a) Almennur ritháttur: Fegurðarsamkeppnir eru vinsælar í Norður-Ameríku
Auðlesinn ritháttur: Fegurðar-samkeppnir eru vinsælar í Norður-Ameríku
Hafi lesandinn ekki upprunalega textann við höndina er ekki augljóst hvort bandstrikið skuli ávallt nota í báðum orðum, aðeins öðru þeirra, eða hvorugu. Með miðjupunkti blasir það hins vegar við:
b) Auðlesinn ritháttur með miðjupunkti:
Fegurðar·samkeppnir eru vinsælar í Norður-Ameríku
Miðjupunktur er viðbótartákn og lestrarhjálp sem tilheyrir ekki ritkerfinu sem slíku. Sé það skýrt læra lesendur auðlesinna texta ekki rangan eða óheðfbundinn rithátt orða. Í dæminu hér að ofan heldur bandstrikið sér en miðjupunkturinn fellur brott utan auðlesins máls.
Í sumum tilfellum geta miðjupunktur og bandstrik komið fyrir í sama orðinu:
Norður-Ameríku·búar
Félags- og húsnæðismála·ráðuneytið
Hér er tekið tillit til þess að fyrir hluta markhópsins er auðlesinn texti aðeins tímabundið hjálpartæki. Þau nýta sér auðlesið mál á meðan þau tileinka sér aukna færni í lestri eða tungumálinu og er næsta skrefið að lesa og skrifa texta á almennu máli. Það er mikilvægt að þau læri rétta stafsetningu og séu því meðvituð um eðli miðjupunktsins. Með þessari breytingu er stafsetning í raun samræmd við almennt mál og engin þörf á ágiskunum fyrir þau sem nýta sér bæði.
Það hjálpar að nota alltaf sama orðið yfir sama fyrirbærið í auðlesnum textum og eins og fram hefur komið er ekki gott að láta orðin gegna of mörgum hlutverkum í einu. Að sama skapi verður texti skýrari þegar miðjupunktur er látinn sinna þessu hlutverki og bandstrik sínu.
Þó notkun bandstriks í auðlesnum textum hingað til teljist strangt til tekið ekki röng má segja að miðjupunkturinn falli betur að grunnreglu 2.2 um að skrifa rétta íslensku. Að skrifa: „atkvæða-greiðsla“ eða „Íslands-saga“ telst seint góð íslenska.
2.1.5.3 Samfélagslegt samþykki
Sömu rök hníga að því að miðjupunkturinn geti aukið samfélagslegt samþykki auðlesinna texta. Miklir möguleikar eru á að nota auðlesna texta í ýmsu samhengi sem ekki snýr endilega að fólki með þroskahamlanir. Grunnskólar gætu nýtt sér auðlesna texta um stór og flókin málefni líkt og mannréttindi og lýðræði. Auðlesnir textar geta einnig verið gagnlegir á fyrstu stigum tungumálanáms fullorðinna þar sem skýringar fylgja orðum og setningagerð er eins einföld og hún gerist.
Til að svo megi verða skiptir máli að textarnir séu réttir. Of mörg bandstrik á stöðum þar sem það þykir ekki náttúrulegt getur fælt fólk frá auðlesnum textum. Miðjupunkturinn viðheldur aðgreiningu orðhluta en er minna inngrip í textann. Bilið er enn nægilegt til að það komi að gagni en ekki svo mikið að textinn virki sundurslitinn fyrir þau sem ekki þurfa á aðgreiningunni að halda.
2.1.5.4 Að bera kennsl á orð utan auðlesins mál
Löng og flókin orð eiga sjaldnast heima í auðlesnu máli. Þegar þau koma fyrir er það vegna þess að þau eru mikilvæg fyrir skilning á textanum og það er ekki hægt að umorða þau. Í leiðbeiningum um réttindi fatlaðra gæti t.a.m. reynst óhjákvæmilegt að nota orðið „réttindagæslu·maður“. Þá er mikilvægt að góð skýring fylgi orðinu svo lesandinn skilji merkingu þess.
Markmið margra auðlesinna texta er að lesandinn geti athafnað sig í daglegu lífi. Lesandinn þarf því að geta borið kennsl á það sem hann les um þar sem það kemur fyrir annars staðar. Hér auðveldar miðjupunkturinn málið því lesendur búast ekki við honum utan auðlesinna texta og geta þannig komist hjá mögulegum ruglingi.
2.1.5.5 Ritun miðjupunkts
Unicode kóðinn fyrir miðjupunkt er 00B7 og ASCII kóðinn er 183. Í Windows tölvum er miðjupuntur ritaður með „ALT+0183“ það er að segja ALT hnappnum er haldið inni og ASCII kóðinn sleginn inn. Í Apple tölvum með íslensku lyklaborði er miðjupunktur ritaður með „ALT+SHIFT+?“.
2.2 Tákn og merkingar af ýmsum toga auðvelda að koma merkingu textans til skila
Tungumálið samanstendur af ótal merkjum og táknum sem koma merkingu til skila. Táknin eru af ólíkum toga og gegna margvíslegum hlutverkum. Yrt tákn eru hljóðin og orðin sem eru sögð: það sem er sagt. Sömu orðin geta haft ólíka merkingu eftir því hvernig þau eru sögð. Raddblær, tónhæð, raddstyrkur og hve hratt er talað eru dæmi um hjáyrt tákn. Þau eru bundin þeim yrtu og hafa áhrif á merkingu þeirra. Óyrt tákn eru svo þau sem ekki eru bundin yrtum og hjáyrtum táknum en koma merkingu engu að síður til skila, t.d. látbragð, handahreyfingar og svipbrigði. Allt vinnur þetta saman.
Það sama má segja um ritmál. Rituð tákn eru þau sem mynda textann, stafir, orð og greinarmerki. Hjárituð tákn eru þá feitletrun, inndreginn texti, leturgerðir og svo framvegis. Þetta er í raun allt svið leturfræði og umbrots. Loks eru það svo hin órituðu tákn svo sem ljósmyndir, skýringarmyndir, gröf og teikningar sem dæmi. Allt þetta má nýta til að koma merkingu textans skýrt til skila.
Í auðlesnum textum má nota þessi ólíku tákn til að endurtaka og undirstrika mikilvæg atriði á ólíkan hátt. Til dæmis má feitletra mikilvægar upplýsingar þegar þær koma fyrst fram í textanum og útskýra þær á sama tíma með myndum. Nánar er fjallað um þetta í 6. kafla.
2.3 Notkun talna og tölustafa veltur á eðli og viðfangi textans
Í eldri leiðbeiningum um auðlesinn texta eru gefnar nokkrar þumalputtareglur varðandi notkun talna og prósenta sem taka má saman svona:
Notið tölustafi ekki töluorð
Segið „1 af hverjum 10“ frekar en „10% manna“.
Sum eiga erfitt með prósentur og því má segja „fáir“ eða „lítið“ í stað „7%“ sem dæmi.
Sum eiga erfitt með stórar tölur og því oft betra að segja „margir“ eða „mikið“ í stað „1.567“ sem dæmi.
Einfaldara er að nota 12 tíma klukku en 24 tíma og tala þá um fyrir og eftir hádegi.
Þetta eru ágætis viðmið en að sama skapi of almenn. Oft er við hæfi að tala um „mikið“ eða „lítið“, „marga“ eða „fáa“ en þetta má ekki alhæfa. Hér eru því leiðbeiningar um notkun talna í ólíku samhengi auðlesinna texta.
2.3.1 Ártöl
Stundum þurfa ártöl að vera nákvæm, t.d. þegar fjallað er um sögulega atburði, en í öðrum tilvikum geta þau einfaldlega flækt hlutina. Þá getur nægt að segja „fyrir löngu síðan“ eða „fyrir 300 árum“. Ef fjallað er um atburði á þessari eða liðinni öld er ágætt að nota ártöl til að forðast það að textinn úreldist fljótt vegna setninga á borð við: „fyrir 40 árum“. Skoða þarf hvert tilfelli fyrir sig og og spyrja hvort ártalið skipti höfuðmáli fyrir textann, hvort það megi sleppa ártalinueða setja fram á ónákvæmari en skiljanlegri hátt.
2.3.2 Prósentur og háar tölur
Það sama gildir um prósentur og háar tölur. Sé viðfangsefnið stærðfræði, skattamál, erfðaréttur og slíkt þurfa tölur og prósentur að vera nákvæmar. Eftirfarandi texti er ekki sérlega fræðandi:
a) Þú þarft að borga mikið í skatt.
Þú færð svolítinn afslátt af skattinum í hverjum mánuði.
Þá borgar þú minni skatt.
Hvernig myndir þú leysa þetta? Aftur þarf að huga að samhengi og hve mikilvægar háar tölur og prósentur eru fyrir skilning á textanum. Sé ekki hægt að koma viðfangsefninu til skila öðruvísi gæti þurft að skrifa stutta skýringu og/eða miðla háum tölum og prósentum á myndrænan hátt. Stöpla- og kökurit geta komið að góðu gagni. Þó ekki allir lesendur geti meðtekið allar upplýsingarnar er ekki þar með sagt að efni textans almennt skili sér ekki eða komi ekki að gagni.
2.3.3 Tímasetningar
Fyrri leiðbeiningar mæla með notkun 12 tíma klukku í stað 24 tíma. Dæmi:
b) Ekki skal rita: Tónleikarnir byrja klukkan 21:00.
Betra: Tónleikarnir byrja klukkan 9 um kvöldið.
Ekki verður vikið frá þessum meðmælum hér en áhugavert er að velta upp hvort skilningur fólks á tímasetningum og klukkum hafi breyst með útbreiðslu stafrænna klukkna í snjalltækjum.
2.4 Tölur skal ávallt rita með tölustöfum
Í auðlesnum textum skal ávallt rita tölur með arabískum tölustöfum:
a) 12 lærisveinar, 4 lærissneiðar, 86.400 sekúndur.
Ástæðan er sú að töluorð verða mjög fljótt að langri og ógagnsærri orðarunu:
b) Áttatíu og sex þúsund og fjögur hundruð sekúndur.
Með því að nota tölustafi sést munurinn á stórum tölum skýrar þar sem beint samhengi er á milli stærðar tölunnar og fjölda tölustafa:
c) Íslendingar eru um 400.000
Hollendingar eru um 18.000.000
Kínverjar eru um 1.400.000.000.
Munurinn á töluorðunum er mun handahófskenndari:
d) Fjögur hundruð þúsund
Átján milljónir
Einn milljarður og fjögur hundruð milljónir
Ókosturinn við að nota eingöngu tölustafi er sá að fólk með litla íslenskukunnáttu gæti átt erfitt með að lesa tölurnar upphátt. Arabíska talnakerfið er aftur á móti notað um nánast allan heim og hefur því mikla yfirburði þegar kemur að lesskilningi. Þetta er því annað dæmi um það hvernig skiljanleiki skal ávallt hafa forgang í auðlesnum textum.