Þú átt rétt á upplýsingum á máli sem þú skilur.
Auðlesið mál gerir upplýsingar skýrari og aðgengilegri, svo að fleiri geti skilið réttindi sín og tekið þátt í daglegu lífi. Við hjálpum þér að finna og skilja það sem þú þarft.
Svona hjálpum við þér:
Við þýðum flókinn texta á auðlesið mál, veitum ráðgjöf um skýra miðlun og tökum þátt í samstarfsverkefnum — allt til að gera upplýsingar aðgengilegar öllum.
Auðlesið frá 2024
Fjölmennt hefur rekið Auðlesið frá því í maí 2024, en áður var Auðlesið hjá Þroskahjálp. Við höfum gefið út handbók um auðlesið mál, birtum auðlesna texta og veitum ráðgjöf.
Fyrir hverja er auðlesið mál?
Auðlesið efni hjálpar fólki með fötlun eða lestrarörðugleika, eldra fólki og þeim sem eru að læra íslensku. Hjá okkur eru allir velkomnir.
Hvað er auðlesið mál?
Auðlesið mál er einfölduð íslenska með stuttum setningum, skýrum orðum og góðri uppsetningu, svo að sem flestir geti skilið innihaldið án fyrirhafnar.
Get ég nálgast auðlesið efni á netinu?
Já, á síðunni Auðlesið efni finnur þú safn af auðlesnu efni, meðal annars um kosningar og Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Bjóðið þið upp á aðstoð fyrir stofnanir og fyrirtæki?
Já, við þýðum texta fyrir stofnanir, fyrirtæki og ráðuneyti yfir á auðlesið mál og veitum ráðgjöf um skýra miðlun upplýsinga.
Getið þið hjálpað til við að einfalda efni?
Já, hafðu samband við okkur — við hjálpum þér að breyta flóknum texta í auðlesið mál.
Miðeind
„Auðlesið mál á einfaldan hátt“ er samstarfsverkefni Auðlesið og Miðeindar. Verkefnið snýst um sjálfvirka textaeinföldun í Málstað og hlaut styrk úr Skerfi, innleiðingarsjóði Almannaróms.
ÖBÍ
Auðlesið starfar náið með ÖBÍ við að miðla upplýsingum á auðlesnu máli. Auðlesið er einnig með aðsetur í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42.
Rannsóknarsetur um auðlesið mál
Rannsóknarsetur um auðlesið mál er starfrækt við Háskólann í Hildesheim í Þýskalandi. Auðlesið þýddi og staðfærði handbók þeirra um auðlesið mál og vinnur eftir henni.
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Ráðuneytið styrkir Auðlesið sem hluta af Landsáætlun í málefnum fatlaðra 2024-2027