Handbók um auðlesið mál

Handbók um auðlesið mál

Handbók um auðlesið mál

Útgefandi: Miðstöð um auðlesið mál, 2025

1.1 Grunnreglur með tilliti til málkerfisins

1.1.1 Greinið í sundur

Fyrsta reglan í þessari handbók um auðlesið mál er að greina merkingu orða, setninga og texta í sundur fyrir lesandann. Þegar orð eða setning gegnir of mörgum hlutverkum í senn er hætt við að lesandinn nái ekki merkingunni. Til þess að fyrirbyggja misskilning er mikilvægt að hvert orð gegni skýru hlutverki í setningu og að hver setning gegni skýru hlutverki í textanum.

Tökum dæmi: 

a) Guðrún er ánægð með veisluna.

b) Guðrún er óánægð með veisluna.

Aðeins einn bókstafur, „ó“, greinir þessar setningar að en merking þeirra er algjörlega andstæð. Hættan er sú að lesandinn hoppi yfir þennan eina staf sem er hluti af orðinu sem lýsir afstöðu Guðrúnar til veislunnar og snýr merkingu setningarinnar við. Því skal slíkum forskeytum sleppt og neitunin táknuð með orði sem eingöngu gegnir því hlutverki, t.d. „ekki“. Það skal svo feitletrað til áherslu og til að tryggja að lesandinn sleppi því ekki. Best væri því að umrita setningu b svona:

c) Auðlesið: Guðrún er ekki ánægð með veisluna.

Eignarfallsrunur geta einnig verið flóknar og óskýrar:

d) Köttur nágranna Jóns er oft í garðinum hans.

Hér þarf lesandinn bæði að leysa úr nafnliðnum „Köttur nágranna Jóns“ og greina vísun fornafnsins „hans“. Til að gera málsgreinina auðlesna þarf að skipta henni upp og ákvarða vísun fornafnsins með því að lesa í samhengið eða beita öðrum ráðum:

e) Auðlesið: Jón á nágranna.

Nágranninn á kött.
Nágranni er sá sem á heima nálægt þér.

Kötturinn er oft í garðinum hjá Jóni.
Eða:
Kötturinn er oft í garðinum hjá nágrannanum.

1.1.2 Sækið í miðjuna fremur en jaðarinn

Við eigum auðveldara með að skilja orð sem oftar verða á vegi okkar. Það má segja að hið almenna og algenga sé miðlægt í lífi okkar en hið sérhæfða og sértæka á jaðrinum. Við sjáum, heyrum og tölum oftar um hunda en chihuahua sem dæmi, tré oftar en bjarkir, bíla oftar en tengiltvinnbíla. Þau orð og fyrirbæri eru miðlægari í reynsluheimi okkar. Þegar auðlesinn texti er útbúinn, hvort sem um skrif eða þýðingu er að ræða, er því mikilvægt að velja algeng og almenn orðin eftir fremsta megni. Þessi regla á líka við um málfræði og setningagerð. Nota skal algenga orðaskipan og forðast bæði stílfærslu og frásagnarumröðun.

Vissulega eru til undantekningar á þessu t.d. þegar fjallað er um sérhæft viðfangsefni en þá er nauðsynlegt að skýra orðin vel og endurtaka.

1.1.3 Leggið áherslu á virkni, leikendur og gerendur

Markmið texta á auðlesnu máli er ekki einungis að fræða lesandann heldur gera honum kleift að aðhafast á grundvelli þeirra upplýsinga sem hann sækir sér. Þess vegna þarf alltaf að vera skýrt:

  • Hver gerir hvað. 

  • Hvað má gera.

  • Hvað á að gera.

  • Hvernig á að gera hlutina.

1.1.3.1 Nafnorðastíll

Ein leið til að auk þennan skýrleika er að nota sagnir og sleppa nafnorðastíl. Í nafnorðastíl er upplýsingarnar helst að finna í nafnorðum og þau gjarnan óþarflega mörg. 

Ritver Háskóla Íslands nefnir þessi dæmi um hvernig nafnorðum getur verið ofaukið og ein sögn nægt til að segja það sama:

  • gera könnun > kanna

  • skila hagnaði > hagnast

  • framkvæma lendingu > lenda

Þegar forsetning fylgir með getur ein sögn komið í stað þriggja orða:

  • gera athugun á > athuga

  • leggja mat á > meta

  • taka ákvörðun um > ákveða

  • valda töfum á > tefja

Í sumum tilfellum gengur nafnorðastíllinn svo langt að sagnir nánast hverfa:

a) Mikil óánægja er meðal almennings með aðgerðir ríkisstjórnarinnar

Þetta þekkjum við úr fyrirsögnum fjölmiðla. Skýrara væri að skrifa:

b) Almenningur er mjög óánægður með það sem ríkisstjórnin gerir.

Enn má þó bæta úr þar sem ekki kemur fram hvað það er sem ríkisstjórnin gerir sem vekur óánægju almennings. Það er hlutverk þess sem útbýr auðlesinn texta að greina þetta og koma til skila. 

1.1.3.2 Þolmynd

Í auðlesnum textum skulu leikendur og gerendur nefndir. Forðast skal því þolmynd og ópersónulega setningagerð í auðlesnum texta. Setningarnar hér á undan eru gott dæmi notkun þolmyndar og ópersónulega setningagerð:

a) Í auðlesnum textum skulu leikendur og gerendur nefndir.

b) Forðast skal þolmynd.

Hver er það sem á að taka fram hver gerir hvað í auðlesnum textum? Hver á að forðast þolmynd? Það kemur hvergi fram en við getum lesið það úr samhenginu: Höfundar og þýðendur auðlesinna texta, þeir sem eru ávarpaðir í þessum texta:

c) Nefndu leikendur og gerendur þegar þú útbýrð auðlesinn texta.

d) Forðastu þolmynd.

1.1.3.3 Ábyrgð

Oft er það svo að textinn sem á að þýða er óskýr hvað ábyrgð varðar. Ópersónulegir textar á borð við lög og reglugerðir eru oft dæmium þetta. Þýðandinn þarf þá að koma auga á eða afla sér vitneskju um leikendur og gerendur svo lesendur viti til hvers er ætlast af þeim og hvert þeir skuli leita. Þetta er stundum afar erfitt og getur bent til þess að ábyrgðarhlutverk séu ekki nægilega skýr í frumtextanum sjálfum. Slíkar staðreyndir koma stundum í ljós þegar þýtt er yfir á auðlesið mál.

1.1.3.4 Rétt tímaröð

Að lokum má nefna að allar upplýsingar skulu koma fram í réttri tímaröð. Það á við bæði innan setninga og í textanum sjálfum. Leiðbeiningar skulu gefnar skref fyrir skref í þeirri röð sem þau eru framkvæmd. Ekki svona:

a) Tertan skal látin standa áður en hún er borin fram eftir að síðasti botninn er settur á með rjómafyllingu og búið er að skreyta hana.

Heldur svona:

b) Auðlesið:
Settu síðasta botninn ofan á. 

Næst setur þú rjómafyllingu yfir botninn. 

Þá getur þú skreytt tertuna. 

Láttu tertuna standa í stutta stund. 

Berðu tertuna svo fram.

1.1.4 Endurtakið hið miðlæga og mikilvæga

Endurtakið miðlægar og mikilvægar upplýsingar og miðlið þeim með ólíkum hætti svo þær fari ekki fram hjá lesandanum. Þetta er grunnregla aðgengilegrar miðlunar og samskipta. Á flugvelli eru upplýsingar gefnar í kallkerfi og á skjám. Þeir sem sjá illa geta þá heyrt og þeir sem heyra illa geta þá séð. 

Í auðlesnum textum birtist þetta á marga vegu og þjónar þeim tilgangi að draga úr líkunum á að lesandanum yfirsjáist mikilvæg atriði:

  • Lok setningar eru táknuð með punkti en líka með því að hefja þá næstu í nýrri línu.

  • Neitun („ekki“) er feitletruð.

  • Mikilvæg eða erfið hugtök eru skýrð með ljósmyndum/grafík/táknmyndum.

  • Orðskýringar eru endurteknar eftir þörfum.

1.2 Siðferðislegar grunnreglur auðlesins máls

1.2.1 Bilið brúað

Oft er auðlesinn texti þýðing á öðrum texta. Þá er nauðsynlegt að viðhalda tengslunum við frumtextann svo þau sem vilja nýta sér báða textana geti gert það. Að auki er frumtextinn jafnan sá sem gildir þegar kemur að reglum, lögum, samningum o.þ.h. 

Auðlesni textinn á bæði að geta staðið sjálfstætt og nýst sem hjálpargagn fyrir þau sem þurfa ekki varanlega á auðlesnu máli að halda. Mörg nýta sér auðlesið mál aðeins sem vörðu á leið sinni að einföldu eða almennu máli. Hér er til dæmis átt við þau sem eru að læra tungumálið eða glíma við lestrarörðugleika án annarra hamlana á skilningi eða þroska.

Formgerð auðlesna textans og frumtextans þarf því að vera nægilega lík til að hægt sé að stökkva á milli þeirra, finna skýringar í þeim auðlesna eða nálgast ítarlegri upplýsingar í frumtextann. Að útbúa auðlesinn texta felur oft í sér inngrip í textann og breytingar sem gera textann auðveldari að skilja. Ekki skal þó hrófla við heildarskipulagi textans því það slítur tengslin á milli þeirra. Í þýðingarferlinu getur það gerst að þýðandi komi auga á alvarlega vankanta í frumtextanum. Þá fer best á að gera breytingar á frumtextanum í samræmi við þann auðlesna.

1.2.2 Skrifið rétta íslensku

Þessi regla kann að virðast í senn sjálfsögð og óþörf. Engu að síður er tilefni til að draga hana fram, útlista hvað hún felur í sér og hvers vegna.

Fyrst og fremst setur þessi regla ofureinföldun skorður. Auðlesið mál er einfaldað mál en það má þó ekki einfalda það svo mikið að það brjóti gegn ritreglum íslenskunnar. Tvær hefðir hafa skapast í auðlesnu máli á íslensku sem teljast seint til góðrar íslensku. Annars vegar er það skipting langra orða í orðhluta með bandstriki og hins vegar það að hefja setningar á samtengingu. Hvort um sig þjónar vissulega þeim tilgangi að gera texta auðlesinn en hliðaráhrif þeirra gera aðrar lausnir ákjósanlegri.

Samtengingar eru stundum hafðar í upphafi málsgreina sem stílbragð þó vanalega séu þær milli setninga. Í auðlesnum textum er aðeins ein setning höfð í hverri málsgrein. Málsgreinum með tveimur aðalsetningum og samtengingu á milli er því stundum skipt upp með eftirfarandi hætti:

a) Láru finnst skemmtilegt að baka og fara í leikhús en henni leiðist að taka til og passa systur sína.

b) Láru finnst skemmtilegt að baka.
Og fara í leikhús.
Láru leiðist að taka til.
Og passa systur sína.

Hér er ljóst að ekki er um stílbragð að ræða heldur ranga notkun greinarmerkja. Því skal leita annarra lausna svo sem:

c) Auðlesið: Láru finnst skemmtilegt að baka.
Láru finnst líka skemmtilegt að fara í leikhús.
Láru finnst leiðinlegt  að taka til.
Láru finnst líka leiðinlegt að passa systur sína.

Eða, ef atriðin eru fleiri en tvö:

d) Auðlesið: Þetta finnst Láru skemmtilegt að gera:

  • Að baka

  • Að fara í leikhús

  • Að …

    Þetta finnst Láru leiðinlegt að gera:

  • Að taka til

  • Að passa systur sína

  • Að …

Ítarlega er fjallað um aukatengingar og hvernig leysa skal úr aukasetningum í kafla 4.5. Engar aukasetningar, engar kommur. Hvað skiptingu orða með bandstriki varðar nægir hér að benda á kafla 2.1.4. og 2.1.5. um bandstrik og miðjupunkt.

Lesendur auðlesinna texta eiga rétt á textum sem eru réttir, ekki bara að innihaldinu til heldur einnig forminu. Með því að bjóða þeim upp á ranga íslensku er óbeint og óvart gefið í skyn að þeir þurfi ekki eða geti ekki nýtt sér rétta íslensku. Í þessari handbók er að finna lausnir sem gera þýðendum og textahöfundum að komast hjá þessu. Að auki hjálpar rétt íslenska þeim sem nýta sér auðlesna texta sem tímabundið hjálpartæki þar sem sömu ritreglur eiga við. Sértækar lausnir sem brjóta gegn ritreglum vinna því gegn markmiðum um inngildingu og útbreiðslu auðlesins máls. 

1.2.3 Ávarpið fullorðið fólk sem slíkt

Auðlesnir textar eru skrifaðir fyrir alla aldurshópa og notaðir í skólum, til fræðslu, upplýsinga og til valdeflingar. Hætt er við að skýringarmyndir sem fylgja auðlesnum textum séu barnalegar þó textinn sé ætlaður fullorðnu fólki. Þetta viðheldur og ýtir undir þá staðalímynd að fólk með fatlanir sé ekki fullorðið fólk og með þessu er talað niður til þess. 

Með því að barngera fullorðið fólk með fatlanir er sjálfstæði þess ekki virt og staða þess á jaðrinum eða sem „öðruvísi“ undirstrikuð. Það sama gildir um tón textans almennt. Sé skrifað eða þýtt fyrir börn má nota orðalag þeirra en fullorðið fólk skal ávallt ávarpað sem slíkt.

Barnalegar myndir og tónn texta geta að auki fælt aðra lesendur auðlesinna texta frá, svo sem þá sem glíma við lestrarörðugleika án annarra hamlana, fólk sem er að læra íslensku og svo framvegis. Að auki aðgreina barnalegar myndir auðlesinn texta um of og geta gefið í skyn að hann skuli ekki taka alvarlega.

Af þessum ástæðum á aldrei að nota myndir sem ætlaðar eru börnum í textum fyrir fullorðið fólk. Tekið skal fram að hér er ekki átt við hjálpartæki á borð við Pictogram og Bliss.

1.2.4 Í vafatilfellum hefur skiljanleiki ávallt forgang

1.2.4.1. Breytingar í málinu

Undanfarin ár hefur umræða skapast um kynhlutlaust mál og hvernig félagslegir þættir og hugmyndir móta mál og máltilfinningu. Með opinberri viðurkenningu þess að kynin séu fleiri en tvö hefur t.a.m. þurft að taka upp ný orð á borð við persónufornafnið „hán“ og nafnorðið „kvár“ yfir kynsegin einstaklinga. Einnig hafa mörg tekið upp á því að laga mál sitt að ólíkri upplifun fólks á sjálfu sér, samfélaginu og veruleikanum með það að markmiði að útiloka engin.

Orðið „maður“ hefur t.d. verið í brennidepli. Oft hefur „maður“ sömu vísan og „manneskja“ og vísar til allra einstaklinga af tegundinni Homo sapiens. Stundum vísar „maður“ þó eingöngu til karlkyns einstaklinga þeirrar tegundar. Við þetta bætist að málfræðilegt karlkyn er ómarkað eða hlutlaust í íslensku. Mörgum þykir sú notkun útilokandi þar sem það getur virst sjálfgefið að um karlmann en ekki bara manneskju sé að ræða. Sem viðbragð við þessu er stundum talað um „fólk“ í staðinn fyrir „menn“ og „öll“ ávörpuð fremur en „allir“. 

Fyrir ekki svo löngu síðan var þróunin sú að starfsheitum í kvenkyni var skipt út fyrir starfsheiti í karlkyni þar sem þau þóttu hlutlaus. „Hjúkrunarkona“ varð að „hjúkrunarfræðingi“, „fóstra“ að „leikskólakennara“ o.s.frv. Þessi þróun hefur nú snúist við og æ oftar er viðskeytinu „-maður“ skipt út fyrir „-kona“ og talað um þingkonur, lögreglukonur og vísindakonur svo dæmi séu nefnd. Hvað kynsegin starfsheiti hefur lítil sem engin hefð skapast.

Sitt sýnist hverjum/hverri/hverju um þessar breytingar en segja má að kynhlutlaust og inngildandi mál samræmist auðlesnu máli í stórum dráttum. Sjálfsagt er að tala um „vísindafólk“ og ávarpa „öll“ en þó geta komið upp tilvik þar sem kynhlutlaust mál togast á við reglur auðskilins máls. Má þar nefna tvennt sérstaklega. Fjölgun orða annars vegar og ósamræmi í orðanotkun hins vegar.

1.2.4.2 Fjölgun orða

Til þess að útiloka engan/enga/ekkert eru gjarnan notuð mörg orð þar sem ómarkað karlkyn hefur eitt verið látið nægja hingað til. Málsgreinin hér á undan er dæmi um slíkt en algengara er að sjá setningar sem þessar:

a) Í dag starfa bæði þingmenn og þingkonur á Alþingi. Þau setja lög fyrir landið sem forsetinn samþykkir.

Eins og fram kemur í kafla 5.4 gilda sérstakar reglur um notkun persónufornafna í auðlesnu máli og yrði dæmið því svona:

b) Í dag starfa bæði þingmenn og þingkonur á Alþingi.

Þingmenn og þingkonur setja lög fyrir landið.

Forsetinn samþykkir lögin.

Sé einingin „þingmenn og þingkonur“ endurtekin oft í textanum lengist hann. Það tekur lengri tíma að lesa hann, þreyta getur farið að segja til sín og mikilvægar upplýsingar farið fram hjá lesandanum. Eftir því sem atkvæðum fjölgar vex vandinn sbr. „lögreglumenn og lögreglukonur“ og textinn verður torskildari. Hér togast markmið kynhlutlauss og auðlesins máls á. Þar sem um auðlesna texta er að ræða verður kynhlutleysið að víkja standi það í vegi fyrir því að textinn sé einfaldur, knappur og skiljanlegur. Sé ekki hægt að orða hlutina öðruvísi er því mælt með að málfræðilegt karlkyn sem ómarkað kyn sé notað í auðlesnum textum.

Mögulegri leið til að ná vissu jafnvægi milli auðlæsis og kynhlutleysis verður lýst hér á eftir.

1.2.4.3 Ósamræmi í orðanotkun

Viðskeytið „-fólk“ í stað „-maður“ er ein leið til að ná fram kynhlutleysi: „vísindafólk“, „blaðafólk“, „Palestínufólk“ o.s.frv. Málin vandast þó þegar vísa þarf til tiltekinnar manneskju. „Fólk“ er eintöluorð sem vísar til hóps. Almennt er ekkert því til fyrirstöðu að tala um „vísindafólk“ og svo „vísindamann“ eða „vísindakonu“ í sama texta. Ein af reglum auðlesins máls er hins vegar að nota ávallt sömu orðin um sömu hlutina. Það samræmist því ekki reglum auðlesins máls að vísa til sömu manneskjunnar sem „vísindamaður“ og „vísindakonu“ í sama textanum. Aftur er því mælt með að sé ekki hægt að orða hlutina öðruvísi sé málfræðilegt karlkyn sem ómarkað kyn notað í auðlesnum textum.

1.2.4.4 Möguleg leið til jafnvægis

Að þessu sögðu er ekki ómögulegt að sýna viðleitni til kynhlutleysis í auðlesnum textum sé þess óskað. Ein leið til þess er að taka það fram í upphafi eða inngangi texta að átt sé við öll kyn þó eingöngu karlkynið sé notað í textanum. Sú skýring gæti t.d. litið svona út:

c) Athugið! 

Í textanum eru starfsheiti alltaf í karlkyni.

Þannig er auðveldara að lesa textann.

Til dæmis:

                  Í textanum stendur þingmaður.

                  Þingmenn geta verið karlar.

                  Þingmenn geta verið konur.

                  Þingmenn geta verið kvár.

                  Konur á þingi eru kallaðar þingkonur.

Efnisyfirlit

Efnisyfirlit

Sækja handbókina

Nálgastu alla handbókina á PDF-formi.

Sækja handbókina

Nálgastu alla handbókina á PDF-formi.

Sækja handbókina

Nálgastu alla handbókina á PDF-formi.