Útgefandi: Miðstöð um auðlesið mál, 2025
Það er á sviði setningagerðar sem auðlesið mál er hvað frábrugðnast hefðbundinni íslensku. Hingað til hefur skort nákvæmar leiðbeiningar um hvaða leiðir eru færar til að einfalda setningagerð með áherslu á skýrleika. Hér verður bætt úr því og byggir þessi kafli sérstaklega á rannsóknum Christiane Maaß og Ursulu Bredel hjá Forschungsstelle Leichte Sprache við Háskólann í Hildesheim.
4.1 Sagnorð í stað nafnorða
Þriðja grunnregla auðlesins máls snýst um að leggja áherslu á virkni og hver það er sem gerir eða á að gera hvað. Helstu leiðir til þess eru að forðast nafnorðastíl og þolmynd. Tæpt var á þessu hér að ofan en í þessum undirkafla og þeim næsta verður nánar fjallað um þessi atriði.
Nafnorðastíll er einkenni fag- og fræðitexta og felst í því að upplýsingum er komið til skila með óhlutbundnum nafnorðum á meðan sagnir víkja og/eða verða merkingarlitlar:
a) Að gera prófanir > að prófa
Nafnorðastíllinn réttlætist af því að óhlutbundnum nafnorðun fylgir oft nákvæm skilgreining sem beint og/eða óbeint er vísað til í fag- og fræðitextum. Sé sömu staðreyndum miðlað með sagnorðum getur þessi vísun tapast. Á tilteknu sviði getur það að „gera prófanir“ falið í sér skýrt verklag og gæðastaðla sem það að „prófa“ vísar ekki til.
Auðlesnir textar eru hvorki fag- né fræðitextar og á nafnorðastíll ekki heima þar. Mun skýrara er að nota sagnir eins og fjallað er um í kafla 1.1.3.
Nafnorðastíllinn á það einnig til að fara fram úr öllu hófi þegar fólk vill vanda mál sitt eða nota formlegt og stofnanalegt mál. Það getur skapað ásynd nákvæmni án þess að bæta raunar nokkru við. Í „Hugleiðingum um íslenskt lagamál“ tekur Kristján Árnason eftirfarandi dæmi um þann misskilning að nafnorðastíllinn sé alltaf nákvæmari og vísindalegri:
b) Hagfræðingar segja að aukning eða minnkun á kaupgetu fólks hafi áhrif til hækkunar eða lækkunar á íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu.
Hér eru upplýsingarnar grafnar í nafnorðaflaumi og það væri mun skýrara ef hagfræðingar segðu:
c) Verð á húsnæði fylgir kaupgetu.
Þó má enn bæta um betur sé ætlunin að hafa textann auðlesinn, enda hafa mikilvægar upplýsingar fallið brott í tillögu Kristjáns, og skrifa:
d) Verð á húsnæði fer eftir því hvað fólk á mikla peninga.
Þetta gildir á höfuðborgar·svæðinu.
Hvað svo sem liggur að baki nafnorðastílnum þá á hann ekki heima í auðlesnu máli. Þess vegna þarf að umorða textann þar sem nafnorðastíllinn kemur fyrir. Við það að umorða textann getur hann lengst til muna eins og dæmi d) sýnir. Óhlutbundin nafnorð má aðeins nota ef þau skipta verulegu máli fyrir textann og skulu þeim þá fylgja skýringar. Sjá: 3.3. Forðist fræði-, töku og erlend orð.
4.2 Forðist þolmynd
Frá sjónarhóli málfræðinnar er hvorki flóknara né erfiðara að skilja þolmynd en germynd. Gallinn við þolmynd er hins vegar sá að hún felur oft mikilvægar upplýsingar: hver það er sem gerir hlutina. Þolmyndin er ráðandi í mörgum textum og gerir það að verkum – hvort sem það er ætlunin eða ekki – að leikendur og gerendur hverfa úr textanum. Texti verður torskildari þegar mikilvægar upplýsingar sem þessar eru ekki í textanum heldur þarf að lesa úr samhenginu. Tökum dæmi:
a) Í dag eru kosningar til nemendaráðs.
b) Í dag verður nemendaráð kosið.
c) Í dag kjósum við í nemendaráð.
Í dæmi a) er aðalatriðinu miðlað með nafnorði og hjálparsögn: „eru kosningar“. Í dæmi b) er sama atriði sett fram með sögn í þolmynd: „verður [...] kosið“. Það er fyrst í c) sem það kemur fram hver það er sem gerir eitthvað: við kjósum. Dæmi c) er mun nákvæmara en hin og getur falið í sér boð: kjóstu. Hvorki a) né b) gefa til kynna að lesandinn hafi möguleika á gera nokkuð. Fyrir vikið er germynd mun ákjósanlegri en þolmynd. Eins og dæmin sýna þá á nafnorðastíllinn það alveg jafn mikið til að dylja leikendur og gerendur.
Þetta er mikilvægt úrlausnarefni fyrir þau sem þýða texta yfir á auðlesið mál, að bæta við nauðsynlegum upplýsingum sem ekki er að finna í textanum. Það kemur hvorki fram í a) né b) hver það eru sem kjósa. Þeim upplýsingum var bætt við í c).
Þegar setningum í þolmynd eða nafnorðastíl eru þýddar á auðlesið mál þarf oft að vera mun nákvæmari en frumtextinn býður upp á. Þýðandinn þarf að draga fram og nefna aðila sem ekki er endilega minnst á í frumtextanum. Það er ekki alltaf auðvelt, sérstaklega þegar kemur að lagatextum og reglugerðum:
d) Skila þarf inn umsókn í síðasta lagi 20. þess mánaðar sem taka eftirlauna á að hefjast.
Hér er enginn gerandi tekinn fram: Hver getur sótt um? Hvar sækir maður um? Það kemur kannski fram einhvers staðar annars staðar í textanum en það er alls ekki alltaf tilfellið. Þýðandinn þarf að bæta þessum upplýsingum við á þeim stað sem þeirra er þörf. Þessar „viðbótar-“upplýsingar eru ein helsta ástæða þess að auðlesnir textar geta gagnast mun fleirum en aðeins markhóp auðlesins texta.
4.3 Notið einfalda orðaröð
Sjálfgefin orðaröð í íslensku er F-S-A (frumlag-sögn-andlag). Íslenskan er þó frjó og getur orðaröðin tekið breytingum þegar upplýsingum er bætt við:
a) Sigurður heimsækir vin sinn. F-S-A
b) Á morgun heimsækir Sigurður vin sinn. S-F-A
Þessi breytta orðaröð getur markað ólíkar áherslur:
c) Sigurður heimsækir vin sinn á morgun.
d) Á morgun heimsækir Sigurður vin sinn.
Þessar setningar hafa sömu merkingu. Í c) er áherslan þó á heimsóknina en í d) á hvað Sigurður mun gera á morgun. Þessum greinarmun má halda í auðlesnum textum en mælt er með að nota sjálfgefna orðaröð hvar sem því verður við komið.
4.4 Aðeins ein setning í hverri málsgrein
Í auðlesnum textum eiga málsgreinar ekki að vera flóknar og margþættar heldur einfaldar. Málsgreinar skulu því einungis innihalda eina setningu hver. Það sem hægt er að segja í einni setningu er ein hugsun. Slíkt er í eðli sínu einfalt. Frekari skýringar, skilgreiningar, skilyrðingar og útlistanir á einstökum atriðum kalla á nýjar setningar og eiga því heima í nýjum málsgreinum sem skulu hefjast í nýjum línum.
4.5 Engar aukasetningar, engar kommur
Málsgreinar skulu vera einfaldar og aðeins innihalda eina setningu. Af þessu leiðir að aukasetningar eiga ekki heima í auðlesnum textum. Raunar er það eitt helsta úrlausnarefnið hvernig greiða skuli úr flóknum, samsettum setningum. Í þessum undirkafla verður fjallað um helstu gerðir aukasetninga og staðlaðar aðferðir við að færa þær í auðlesið mál.
Staðlaðar aðferðir auðvelda þýðendum og textahöfundum vinnu sína og auka skilning lesenda. Með því að nota ávallt sömu samtengingar og setningargerð fyrir setningar af sama tagi læra lesendur að bera kennsl á þær og skilja betur merkingu þeirra.
4.5.1 Skilyrðissetning: „Ef..., þá...“ – > Spurning + „Þá...“
· Svarar spurningunni: „Við hvaða skilyrði/undir hvaða kringumstæðum?“
· Þekkist í frumtextanum á: „ef, (þá)“ og „nema“.
· Á auðlesnu máli: Spurning + „Þá...“
Skilyrðissetningar geta komið fyrir án samtengingar:
a) Viljir þú fá sérúrræði (þá) þarftu að senda inn umsókn.
Skilyrðissetningar tilgreina skilyrði og afleiðingar þess að skilyrðin séu uppfyllt.
b) Ef þú vilt fá sérúrræði, (þá) þarftu að senda inn umsókn.
Skilyrðissetningar geta líka lýst veruleika sem raungerðist ekki. Slíkar setningar er mjög snúið að þýða á auðlesið mál:
c) Ef þú hefðir sent inn umsókn, þá hefðir þú fengið sérúrræði.
Setningar á borð við þessa eru flóknar í eðli sínu: Þær tilgreina skilyrði, sem hefði það verið uppfyllt í fortíðinni myndi hafa tilteknar afleiðingar, sem nú, þar sem skilyrðið var ekki uppfyllt, geta ekki átt sér stað (svo auðveldlega). Það að fjalla um veruleikann á þennan hátt gerir miklar kröfur til allra lesenda, ekki einungis þeirra sem nýta sér auðlesið mál. Auk setningagerðarinnar (sem á ekki að nota) eykur viðtengingarhátturinn flækjustigið til muna, en hann getur verið mjög erfitt að forðast. Þegar kemur að óraunverulegum skilyrðissetningum sem þessari þarf að lesa í samhengið hvaða fullyrðingar þær innihalda. Þá fullyrðingu þarf svo að setja fram. Í þessu tiltekna dæmi snýr þetta að aðstæðum lesandans. Viðkomandi hefur væntanlega ekki fengið nein sérúrræði. Ástæðan er sú að engin umsókn var send inn:
d) Auðlesið mál:
Til að fá sér·úrræði þarftu að senda inn umsókn.
Umsóknin þarf að berast skólanum fyrir (dagsetning, dögum áður,...)
Þú sendir ekki inn umsókn.
Þess vegna færð þú ekki sér·úrræði.
Óraunverulegar skilyrðissetningar eru í öllu falli áskorun fyrir þýðendur.
Auðveldara er að eiga við raunverulegar skilyrðissetningar: skilyrðin eru sett fram sem spurning og afleiðingarnar kynntar með „Þá“:
e) Auðlesið mál: Vilt þú fá sér·úrræði?
Þá þarftu að senda inn umsókn.
Mælt er með því að leysa úr skilyrðissetningum með þessum hætti þar sem hann er tiltölulega auðskilinn. Sé það alltaf gert getur það leitt til þess að fjölmargar spurningar komi fyrir í sumum textum. Þá má skoða hvort einhverjar skilyrðissetningar séu í raun nauðsynlegar eða hvort setja megi efnið fram með öðrum hætti og beina lesandanum að þeim upplýsingum sem hann þarf á að halda.
4.5.2 Orsakarsetning: “Af því að...,...“, “...,vegna þess að...“ –> Orsök á undan afleiðingu: “Þess vegna“; Afleiðing á undan orsök: “nefnilega“
· Svarar spurningunni: „Hvers vegna? Hver er ástæðan?“
· Þekkist í frumtextanum á: „af því að“, “vegna þess að“, „þess vegna“, „fyrir vikið“ og „þar af leiðandi“.
· Á auðlesnu máli: „þess vegna“ eða „nefnilega“
Orsakarsetningar tilgreina ástæðu þess að eitthvað gerist eða er eins og það er. Orsökina má tilgreina annað hvort á undan eða eftir afleiðingunni. Það er einnig möguleiki í auðlesnu máli:
a) Kaffihúsið þurfti að loka á veturna vegna þess að þá komu engir viðskiptavinir.
b) Auðlesið: Það voru engir viðskiptavinir á veturna
Þess vegna þurfti kaffihúsið að loka þá.
c) Auðlesið: Kaffihúsið þurfti að loka á veturna.
Það voru nefnilega engir viðskiptavinir þá.
Það hvor möguleikinn er valinn fer eftir því hvað leggja skal áherslu á. Í b) er áherslan á orsökina (skortur á viðskiptavinum) sem leiðir að tilteknu ástandi (kaffihúsið þurfti að loka) . Í c) er ástandinu lýst og orsökin tilgreind í næstu setningu. Hvort um sig getur átt vel við í ákveðnu samhengi en á þessu tvennu er smávægilegur blæbrigðamunur. Gott er að geta gripið til beggja í auðlesnum textum.
4.5.3 Tíðarsetning: „Meðan...“; „Áður en...“; „Eftir að...“ – > Atburðir settir í rétta tímaröð, mögulega: „fyrst“, „svo“, „núna“, „og“.
· Svarar spurningunni: „Hvenær? Síðan hvenær? Hve lengi?“
· Þekkist í frumtextanum á: „meðan“, „eftir að“, „áður en“, „þangað til“, „þegar“, „síðan“ og „svo lengi sem“.
· Á auðlesnu máli: Atburðir í réttri tímaröð + hjálpar orð á borð við „fyrst“, „svo“, „núna“, „og“
Tíðarsetningar gefa til kynna í hvaða röð atburðir gerast; samtímis, einn á undan öðrum, einn á eftir öðrum.
Tíðarsetningar geta verið lúmskar: Það kemur fyrir að setning sé „klædd í búning“ tíðarsetningar en eigi í raun að lesast sem orsakar- eða viðurkenningarsetning:
a) Hún varð ólétt og svo gifti hún sig.
Hér er greint frá tveimur atburðum og í hvaða röð þeir áttu sér stað. Engu að síður eru orsakatengsl gefin sterkt í skyn, að óléttan sé ein eða jafnvel eina ástæða giftingarinnar.
b) Fyrst drakk hann þrjá bjóra og svo settist hann undir stýri.
Aftur er greint frá tveimur atburðum og í hvaða röð þeir áttu sér stað. Engu að síður felst í setningunni viss viðurkenning: Hann settist undir stýri „þrátt fyrir“ að vera undir áhrifum.
Fyrsta skref þýðandans er því að ákvarða hvort um raunverulega tíðarsetningu sé að ræða. Eigi setningin að lesast á annan hátt þarf þýðandinn að draga þá merkingu upp á yfirborðið:
c) Auðlesið:
María varð ólétt.
Þess vegna giftu María og Pétur sig.
d) Auðlesið:
Róbert drakk þrjá bjóra.
Samt keyrði Róbert svo bíl.
Sé um raunverulega tíðarsetningu að ræða felst þýðingin í því að setja atburði fram í réttri tímaröð og leggja áherslu með orðum á borð við „fyrst“, „svo“ o.s.frv.
e) Gengið er frá dúfunum eins og kjúklingi eftir að búið er að reyta þær, taka innan úr og flambera.
f) Auðlesið:
Fyrst tekur þú fjaðrirnar af dúfunni.
Svo opnar þú kviðinn á dúfunni.
Svo tekur þú innyflin úr kviðnum.
Svo flamberar þú dúfuna.
Það gerir maður svona: ...
Svo bindur þú fæturna á dúfunni saman. ...
4.5.4 Afleiðingarsetning: „... svo að...“ – > „... Þess vegna...“
· Svarar spurningunni: „Hvað leiðir af því sem var sagt?“
· Þekkist í frumtextanum á: „svo að“ eða „svo ... að“.
· Á auðlesnu máli: „Þess vegna“
Afleiðingarsetning tilgreininir afleiðingu gjörðar eða atburðar. Þær skal meðhöndla á sama hátt og orsakarsetningar:
a) Það komu svo fáir gestir að kaffihúsið þurfti að loka.
b) Það komu mjög fáir gestir svo að kaffihúsið þurfti að loka.
c) Auðlesið:
Það komu mjög fáir gestir.
Þess vegna þurfti kaffihúsið að loka.
4.5.5 Viðurkenningarsetning: „Þó að...“ – > „samt“
· Svarar spurningunni: „Þrátt fyrir hvað?“
· Þekkist í frumtextanum á: „þó “, „þó að“ „þó svo“,„þrátt fyrir“,„engu að síður“,„eftir sem áður“ og „samt sem áður“.
· Á auðlesnu máli: „samt“
Viðurkenningarsetningar tilgreina aðstæður sem eru í andstöðu við það sem átti sér stað:
a) Þrátt fyrir að Lúðvík hafi undirbúið sig vel fyrir prófið náði hann því ekki.
b) Auðlesið:
Lúðvík undirbjó sig vel fyrir prófið.
Samt náði Lúðvík ekki prófinu.
Með því að leysa úr viðurkenningarsetningum með þessum hætti er formgerðinni haldið en henni skipt upp í tvær stakar setningar.
4.5.6 Tilgangssetning: “...til þess að...“ – > „...vilja...“ + „Þess vegna...“
· Svarar spurningunni: „Til hvers? Í hvaða tilgangi?“
· Þekkist í frumtextanum á: „til þess að“, „til að“, „svo að“ og „svo“.
· Á auðlesnu máli: „...vilja...“ + „Þess vegna...“
Tilgangssetningar tilgreina tilgang gjörðar. Þá er gjarnan sagt frá ætlun gerandans sem miðar að tilteknu marki:
a) Fjóla skaut boltanum í vinstra hornið til þess að rugla markmanninn.
Þessa ætlun má draga fram í auðlesnu máli með því að leggja áherslu á vilja þess sem gerir eitthvað og taka fram hvert markmið viðkomandi er. Tilgangi er þannig lýst með ætlun („vilja“) og orsök („þess vegna“):
b) Auðlesið:
Fjóla vildi rugla markmanninn.
Þess vegna skaut hún boltanum í vinstra hornið á markinu.
4.5.7 Tilvísunarsetningar: Takmarkandi – > bæta við upplýsingum og skýringum; ekki takmarkandi – > skipta upp í fleiri setningar
Tilvísunarsetningar bæta upplýsingum við það sem er sagt til nánari ákvörðunar. Þær geta ýmist verið takmarkandi eða ekki og það hvernig leyst skal úr þeim veltur á því. Hvað takmarkandi tilvísunarsetningar varðar þarf að taka nauðsynlegar upplýsingar fram og útskýra. Takmarkandi tilvísunarsetningar tilgreina upplýsingar sem ekki er hægt að skilja aðalsetninguna án. Þeim er ekki hægt að sleppa:
a) Vitnin sem þögðu við yfirheyrslu reyndust gagnslaus.
Tilvísunarsetningin takmarkar gildi fullyrðingarinnar við þau vitni sem þögðu við yfirheyrslu. Vel má vera að önnur vitni hafi reynst hjálpleg. Það má því ekki fella þessar upplýsingar á brott án þess að breyta merkingunni verulega.
Tilvísunarsetningar sem eru ekki takmarkandi fela í sér viðbótarupplýsingar. Þær geta verið áhugaverðar og mikilvægar en það má líka lesa setninguna svona:
b) Vitnin, sem þögðu við yfirheyrslu, reyndust gagnslaus.
Hér er leshátturinn sá að vitnin hafi verið gagnslaus og að þau hafi þagað við yfirheyrslu. Til þess að kanna hvort tilvísunarsetning sé takmarkandi eða ekki má prófa að skjóta inn orðunum „vel á minnst“ eða setja tilvísunarsetninguna í sviga:
c) Vitnin, sem vel á minnst þögðu við yfirheyrslu, reyndust gagnslaus.
d) Vitnin (sem þögðu við yfirheyrslu) reyndust gagnslaus.
Haldi setningin merkingu sinni er hún ekki takmarkandi. Breytist merkingin er hún það.
Í tilfelli a), sem er takmarkandi, er einn möguleikinn sá að breyta henni í skilyrðissetningu:
e) Ef vitnin þögðu við yfirheyrslu, þá voru þau gagnslaus.
Hér er lausnin komin fyrir auðlesið mál:
f) Auðlesið: Þögðu vitnin við yfirheyrslu?
Þá voru þau ekki góð vitni.
Tilvísunarsetningar sem ekki eru takmarkandi má yfirleitt brjóta upp í fleiri setningar nokkuð auðveldlega:
g) Auðlesið: Vitnin voru ekki góð.
Vitnin þögðu nefnilega við yfirheyrslu.
4.6 Leyst úr nafnorðastíl
Hér á undan var gert grein fyrir því hvernig leysa má úr flóknum aukasetningum með ákveðnum aðferðum. Aukasetningar eru þó ekki það eina sem getur vafist fyrir þýðendum heldur einnig hinn títtnefndi nafnorðastíll sem er ríkjandi í fag- og fræði textum. Það getur reynst afar snúið að snara nafnorðastílnum beint yfir í auðlesið mál. Einföldunin á sér þá stað á þremur stigum í tveimur skrefum:
1) Nafnorð: Flókinn nafnorðastíll liggur fyrir í frumtextanum.
2) Samsettar setningar: Nafnorðastílinn er færður í samsettar setningar.
3) Auðlesinn texti: Samsettu setningarnar eru færðar í einfaldar setningar.
Tökum dæmi:
a) 1: Við höfum þegar útskýrt fyrir þér leiðbeiningarnar um notkun heyrnartækjanna.
b) 2: Við höfum þegar útskýrt fyrir þér hvernig heyrnartækin þín virka/hvernig þú átt að nota heyrnartækin þín.
Hér þarf þýðandinn oft að túlka. Ef það er ekki fyllilega ljóst af samhenginu hvor túlkunin á við þarf að spyrja þann sem lagði frumtextann til hvor túlkunin er rétt áður en lengra er haldið. Í þessu tilfelli geta „leiðbeiningar um notkun“ átt bæði við um ýmis tæknileg atriði (varúðarmerkingar, viðhald og virkni) en líka hvernig nota skal heyrnartækin í daglegu lífi (Hvað gerir maður þegar það rignir? Má fara með heyrnartækin í sturtu? Hvað með háværar aðstæður?). Að sama skapi geta leiðbeiningarnar fjallað um það hvernig maður passar að tækin skemmist ekki eða hvernig notandinn verndar eigin heyrn. „Notkun“ nær utan um allt þetta og þegar nafnorðinu er breytt í sögn þarf að vera mun nákvæmari. Í dæmi b) voru tveir möguleikar og því þarf að vera ljóst hvorn er átt við. Þegar það er klárt má loks færa á auðlesið mál:
c) Starfsmaður Heyrnartækja.is hefur útskýrt heyrnartækin fyrir þér:
Svona notar þú heyrnartækin:
Eða:
Svona virka heyrnartækin:
Þessi nálgun auðveldar mjög að leysa úr flóknum nafnorðasamsetningum og draga fram tilætlaðan skilning á textanum.
4.7 Forðist viðtengingarhátt
Viðtengingarhátturinn er á margan hátt flókinn. Hann lætur í ljós ósk, vafa, skoðun, skilyrði, möguleika eða eitthvað óraunverulegt. Hann lýsir því veruleika sem gæti orðið annað en framsöguhátturinn sem er notaður til að fullyrða (réttilega og ranglega). Með viðtengingarhætti er greint frá atburðum sem gætu átt sér stað eða hefðu haft tilteknar afleiðingar ef þeir hefðu átt sér stað. Slíkum tilfellum má einnig greina frá með skilyrðissetningum (sjá 4.5.1.):
a) Ef þú hefðir sent inn umsókn, þá hefðir þú fengið sérúrræði.
Eins og þar segir á slík framsetning alls ekki heima í auðlesnum texta þar sem fjallað er um atburði sem ekki áttu sér stað en hefðu haft eitthvað í för með sér ef þeir hefðu átt sér stað Þýðandinn þarf því að hafa töluvert fyrir því að umorða málsgreinina og skipta henni niður til að tryggja réttan skilning:
b) Auðlesið mál:
Til að fá sér·úrræði þarftu að senda inn umsókn.
Umsóknin þarf að berast skólanum fyrir (dagsetning, dögum áður,...)
Þú sendir ekki inn umsókn.
Þess vegna færð þú ekki sér·úrræði.
Í vissum tilfellum má nota orðið „kannski“ til að tákna möguleika/skilyrði:
c) Það væri gaman ef hann kæmi.
d) Auðlesið: Kannski kemur Páll.
Okkur þykir gaman þegar Páll kemur.
Viðtengingarháttur er einnig notaður í óbeinni ræðu:
e) Kristín sagði að hún kæmi með næsta vagni.
Með því að breyta óbeinni ræðu í beina ræðu fellur viðtengingarhátturinn burt:
f) Kristín sagði:
„Ég kem með næsta vagni.“
Nánar er fjallað um beina ræðu í köflum 2.1.3. Tilvitnunarmerki og 5.4.1. Fyrsta og önnur persóna.
4.8 Þátíð, nútíð, framtíð
Auðlesið mál er tungumál nálægðarinnar, þ.e. þess sem er hér og nú. Þó verður ekki hjá því komist að fjalla um atburði sem þegar hafa átt sér stað eða munu gerast. Í þeirri viðleitni að nota sem einfaldasta málfræði eru hér gefin nokkur ráð um hvernig fjalla má um liðna og ókomna atburði á auðlesnu máli. Nútíðin er okkur öllum næst og henni má beita á markvissan hátt til að auka skilning lesenda.
4.8.1 Þátíð
4.8.1.1 Sterkar sagnir í þátíð
Sagnir í íslensku skiptast í sterkar og veikar eftir því hvernig þær beygjast. Veikar sagnir beygjast á reglulegan hátt og taka -ð-, -d-, eða -t- endingu í þátíð:
a) Borða – borðaði – borðað
Sterkar sagnir ganga aftur á móti í gegnum hljóðskipti:
b) Bjóða – bauð – buðum – boðið
Í þátíð líkjast sterkar sagnir nafnhætti sínum síður en veikar og getur því verið erfiðara fyrir lesendur að skilja þær. Þetta eitt og sér myndi mæla gegn notkun þeirra í auðlesnu máli. Á móti kemur að sumar algengustu sagnirnar í íslensku máli hafa sterka beygingu og því verður ekki hjá því komist að nota þær:
c) Vera, koma, ganga, fara, eiga, geta, mega, verða o.s.frv.
Há tíðni þessara sagna gerir það líka að verkum að lesendur eru líklegri til að þekkja ólíkar myndir þeirra og því ættu þær ekki að valda vandræðum. Hvað fágætari sterkar sagnir varðar (og raunar fágætari orð almennt) fer best á að finna algengari samheiti.
4.8.1.2 Rammar
Ein af grunnreglum auðlesins máls er að greina í sundur og tákna hvert málfræðilegt hlutverk fyrir sig. Sagnir í þátíð gegna þó ávallt tveimur hlutverkum þar sem þær standa í senn sem sagnir og tákna tíð. Ein leið til þess að einfalda texta sem er allur í þátíð er að ramma hann inn og segja svo frá í nútíð. Það má til dæmis gera með sagnfræðilega texta:
a) Árið er 1000.
Alþingi er haldið á Þingvöllum.
Fólk er ósammála.
Sumir vilja að Íslendingar hafi ásatrú.
Aðrir vilja að Íslendingar taki kristna trú. [...]
Það sama má gera með frásagnir á borð við ævintýri.
b) Ævintýri er gömul saga.
Þetta ævintýri heitir:
Rauðhetta
Ævintýrið segir frá stelpu.
Stelpan á rauða hettu. [...]
4.8.2 Samsettar tíðir
Samsettar tíðir í íslensku eru sex, núliðin tíð, þáliðin tíð, framtíð, þáframtíð, skildagatíð, þáskildagatíð. Í flestum tilfellum má nota einfalda þátíð eða nútíð í stað þeirra.
4.8.2.1 Núliðin og þáliðin tíð: ég hef..., ég hafði...
Þessar tíðir eru myndaðar með hjálparsögninni „hafa“ í nútíð eða þátíð og merkja að verknaði sé lokið:
a) Núliðin tíð: Ég hef talað.
b) Þáliðin tíð: Ég hafði talað.
Í stað þessara tíða skal nota einfalda þátíð:
c) Ég talaði.
4.8.2.2 Framtíð
Framtíð samanstendur af hjálparsögninni „munu“ + nafnhætti aðalsagnarinnar og táknar að verknaði sé ólokið. Hún er að vissu leyti auðveldari en þátíð þar sem tíðin er mörkuð sérstaklega:
a) Ég mun koma.
Það má hins vegar í langflestum tilvikum nokkuð auðveldlega skipta framtíð út fyrir einfalda nútíð og bæta við tímasetningu:
b) Ég kem á morgun.
Eðli málsins samkvæmt fylgir framtíðinni oft ákveðinn vafi sem fellur brott með umorðun í nútíð. Sé nauðsynlegt að vafinn komi fram má bæta við orðum á borð við: „kannski“, „vonandi“, „líklega“ og „mögulega“:
c) Ég kem líklegast á morgun.
4.8.2.3 Þáframtíð
Þáframtíð samanstendur af aðalsögn + hjálparsögnunum „munu“ og „hafa“. Hún lýsir óvissu um hvort eitthvað hafi gerst eða að haft sé eftir öðrum:
a) Hann mun hafa talað í fjóra klukkutíma.
Hér nægir ekki að færa setninguna í þátíð því óvissan hverfur. Úr þessu má leysa með eftirfarandi hætti:
b) Ég held:
Sigurður talaði í 4 klukkutíma.
Eða:
c) Jón sagði:
Sigurður talaði í 4 klukkutíma.
4.8.2.4 Skildagatíð og þáskildagatíð
Skildagatíðirnar tákna skilyrtan verknað. Skildagatíð samanstendur af hjálparsögninni „munu“ í viðtengingarhætti þátíðar + aðalsögn og þáskildagatíð bætir hjálparsögninni „hafa“ við:
a) Skildagatíð: Ég myndi koma...
b) Þáskildagatíð: Ég myndi hafa komið...
Þar sem báðar tíðir innihalda viðtengingarhátt skal ekki nota þær í auðlesnu máli (sjá 4.7. Forðist viðtengingarhátt)
4.9 Myndlíkingar
Í mörgum leiðbeiningum um auðlesið mál er lagt blátt bann við myndlíkingum og orðatiltækjum. Með því er litið fram hjá því að myndlíkingar liggja hugsun okkar og tjáningu til grundvallar. Myndlíkingar eru oft alveg sérstaklega vel til þess fallnar að útskýra hluti og aðstæður og gera þær skiljanlegar.
Notendur auðlesinna texta gætu til dæmis haft áhuga á auðlesnum sögubókum sem Menntamálastofnun gaf út. Þær eru á „léttu máli“. Mál hefur enga vigt en það er ljóst að það er létt í þeirri merkingu að það er létt að lesa það.
Stólar hafa „fætur“ og nálar „augu“. „Straumur“ „flæðir“ um raflínur. Það eru „gluggar“ og „möppur“ í tölvunum okkar og við „afritum“ og „límum“ textabrot og myndir. Myndlíkingar eru alls staðar og geta hjálpað okkur að skilja flókin fyrirbæri og að sjá hlutina ljóslifandi fyrir okkur.
Í hina röndina (myndlíking) eru myndlíkingar og orðatiltæki sem hvorki eru auðskilin né segja sig sjálf:
· Að snúa við blaðinu
· Að haga seglum eftir vindi
· Að koma af fjöllum
· Að finna einhvern í fjöru
· Að vaxa úr grasi
Við tileinkum okkur þessi orðatiltæki og myndlíkingar samhliða tungumálinu en ef þú hefur ekki lært þau þá skilur þú þau ekki. Þau eiga oft rætur sínar að rekja til gamalla bænda- og sjómannasamfélaga og hafa litla snertingu við líf nútímamannsins.
Það má nota gagnsæjar og auðskildar myndlíkingar í auðlesnum textum, það er þegar þær hafa tengingu við sameiginlegan reynsluheim okkar og eru þar af leiðandi skiljanlegar. Myndlíkingum má einnig breyta í viðlíkingar. Þýðandinn dregur þá upp á yfirborðið þá eiginleika sem myndlíkingin snýr að og skýrir tenginguna. Myndlíkingin verður auðskildari og myndmál textans er látið halda sér.
a) Hún er ljón.
b) Auðskilið mál: Una er sterk eins og ljón.
Þar sem þetta á ekki við er nauðsynlegt að skipta myndlíkingunni út fyrir vafningalaust mál, en enn og aftur, sé myndlíkingin mjög miðlæg í textanum skal hún útskýrð.
c) Sigtryggur sagði:
„Ég kem alveg af fjöllum.“
Það þýðir:
Sigtryggur veit ekkert um málið.
4.10 Neitun
Neitun eru í eðli sínu ekki auðveld. En hvers vegna er neitun flókin? Fyrir því eru margvíslegar ástæður. Ein er sú að þegar við lýsum aðstæðum eða staðreyndum teiknast þær upp í huganum:
a) Í gær var ég ekki í París og ég fór ekki í rauðum bíl í kringum Eiffel-turninn.
Hvaða mynd sérðu fyrir þér? Það er einmitt þessi mynd, sem kemur ósjálfrátt upp, sem setningin neitar. Það er því ljóst að neitun getur skapað vandræði og hana ætti því helst að forðast í auðlesnum textum. Alls staðar þar sem það er hægt ætti fremur að velja jákvæða framsetningu. Í flestum tilfellum ætti það að vera hægt eins og eftirfarandi dæmi úr leiðbeiningum um kosningar sýnir:
b) Aðstoðarmaður má ekki aðstoða fleiri en þrjá kjósendur við sömu kosningar.
c) Auðlesið: Aðstoðar·maður má aðstoða mest 3 kjósendur.
Það þýðir að aðstoðar·maður getur aðstoðað þig.
Aðstoðar·maður má líka aðstoða 2 aðra.
Neitunin er engu að síður miðlæg í öllu tungumáli hvort sem um er að ræða hversdagslegt talmál, nákvæma fræðitexta eða listræn skáldverk. Henni verður ekki sópað burt svo auðveldlega því án hennar getum við ekki talað eða skrifað um heiminn nægilega vel. Vissulega er „heilsa“ „fjarvera sjúkdóma“ en það er ekki alltaf hægt að setja neitun fram með jákvæðu andheiti. Hvernig segir maður „ósyndur“ án neitunar? Hvernig svarar ósyndur einstaklingur rétt og án þess að ljúga ef hann er spurður hvort hann kunni að synda? Er „ég vil heldur vera á þurru landi“, eða „ég drukkna í djúpu vatni“ svör sem eiga við í öllum aðstæðum? Nei.
Þar af leiðandi er það einnig ljóst að hjá neituninni verður ekki alltaf komist. Svo neitunin verði ávallt sem skýrust skal hún eftir fremsta megni vera táknum með orðinu „ekki“:
d) Við bökuðum enga köku í dag.
e) Auðlesið: Við bökuðum ekki köku í dag.
Til áhersluauka skal neitun ávallt vera feitletruð: ekki.