Rafræn skilríki: hvað er það?
Með rafrænum skilríkjum færðu aðgang að þjónustu og upplýsingum sem eru bara fyrir þig og enga aðra. Þú getur til dæmis notað rafræn skilríki þegar þú sækir um þjónustu hjá Reykjavíkurborg, banka eða lækni.
En hvað eru skilríki?
Á skilríkjunum þínum eru upplýsingar um þig sem sanna hver þú ert — til dæmis mynd af þér, nafnið þitt og afmælisdagurinn þinn.
Þú getur fengið skilríki sem þú notar í símanum þínum. Við köllum þau rafræn skilríki. Þau eru eins og lykill sem opnar fyrir þér aðgang að alls kyns þjónustu og upplýsingum sem eru bara fyrir þig.
Hvað get ég gert með rafrænum skilríkjum?
Þú getur til dæmis sótt um fjárhagsaðstoð og akstursþjónustu, sótt um þjónustu hjá Tryggingastofnun ríkisins (TR), og talað við lækninn þinn.
Þú færð rafræn skilríki hjá símafyrirtæki eða í banka, eða hjá fyrirtæki sem heitir Auðkenni. Rafræn skilríki virka í næstum öllum snjallsímum og líka í takkasímum.