Miðstöð um auðlesið mál hefur tekið saman upplýsingar um forsetakosningarnar 1. júní 2024.

Nýr forseti Íslands verður kosinn 1. júní. 12 manns eru í framboði. Sá eða sú sem fær flest atkvæði í kosningunum verður næsti forseti Íslands. Forsetinn er valinn í 4 ár í einu.

Á vefsíðunni kosning.is eru allar upplýsingar um forsetakosningarnar.

Hvað gerir forseti Íslands?

Þjóðhöfðingi

Forseti Íslands er þjóðhöfðingi Íslands og býr á Bessastöðum. Forsetinn er sá sem veitir ríkisstjórninni vald sitt. Annars skiptir forseti sér lítið af stjórnmálum. Það er stundum sagt að forsetinn sameini þjóðina.

Forsetinn og Alþingi

Forseti þarf að staðfesta öll lög sem Alþingi samþykkir. Þjóðin kýs um lögin ef forsetinn staðfestir þau ekki. Það hefur bara gerst 3 sinnum frá því Ísland varð sjálfstætt árið 1944. Þetta er stundum kallað neitunarvald forsetans, eða málskotsréttur.

Forsetaávarp og fálkaorðan

Forseti hefur líka önnur hlutverk. Forseti heldur ræðu á nýársdag og veitir verðlaun fyrir vel unnin störf, til dæmis fálkaorðuna. Til að fá fálkaorðuna þarf fólk að hafa gert eitthvað mikið og gott fyrir Ísland og þjóðina.

Forsetinn, kóngar og drottningar

Forsetinn tekur líka á móti þjóðhöfðingjum sem koma í heimsókn til Íslands. Það geta verið forsetar eða forsætisráðherrar frá öðrum löndum, eða kóngar og drottningar sem dæmi. Forseti getur líka farið í heimsóknir til útlanda og kynnt Ísland fyrir heiminum.

Nýr forseti

Forseti Íslands er Guðni Th. Jóhannesson. Hann var fyrst kosinn forseti árið 2016. Nú er hann að hætta og þjóðin fær að velja nýjan forseta með því að kjósa.

Forsetaframbjóðendur

Í kosningunum er hægt að kjósa 12 manns sem hafa boðið sig fram. Þau eru kölluð forsetaframbjóðendur. Þau eru:

  • Arnar Þór Jónsson

  • Ásdís Rán Gunnarsdóttir

  • Ástþór Magnússon

  • Baldur Þórhallsson

  • Eiríkur Ingi Jóhannsson

  • Halla Hrund Logadóttir

  • Halla Tómasdóttir

  • Helga Þórisdóttir

  • Jón Gnarr

  • Katrín Jakobsdóttir

  • Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir

  • Viktor Traustason

Má ég kjósa?

Þú mátt kjósa 1. júní ef þú ert íslenskur ríkisborgari, átt lögheimili á Íslandi, og ert 18 ára eða eldri.

Þú mátt kjósa þó þú búir í útlöndum ef þú ert íslenskur ríkisborgari, það eru minna en 16 ár síðan þú bjóst á Íslandi, og þú ert 18 ára eða eldri.

Ef þú ert ekki viss hvort þú megir kjósa skaltu spyrja einhvern sem þekkir þig og þú treystir. Kjörskrá er listi yfir öll sem mega kjósa og hvar þau eiga að kjósa. Þú getur flett þinni kennitölu upp á heimasíðu Þjóðskrár. Ef engar upplýsingar finnast þá ert þú ekki á kjörskrá og þá máttu ekki kjósa.

Hvar og hvenær á ég að kjósa?

Forsetakosningar eru 1. júní 2024. Það hvar þú kýst fer eftir því hvar þú ert með lögheimili. Til að vita hvar þú átt að kjósa skaltu fletta kennitölunni þinni upp á heimasíðu Þjóðskrár.

Til þess að kjósa 1. júní þarftu að mæta á kjörstað. Kjörstaðir eru oftast opnir frá klukkan 9 um morguninn til klukkan 10 um kvöldið. Stundum eru kjörstaðir opnir á öðrum tímum — sveitarfélagið þitt auglýsir hvenær.

Hvernig kýs ég?

Á kjörstaðnum

Fyrst mætir þú á þinn kjörstað. Mörgum kjörstöðum er skipt upp í nokkra hluta sem kallast kjördeildir. Þú ert í kjördeildinni sem þín gata er í. Þú mátt taka einhvern með þér sem þú þekkir og þú treystir til að aðstoða þig.

Á kjördeildinni

Þegar þú kemur inn á þína kjördeild sérðu 3 manneskjur sitja við borð — það er kjörstjórnin. Þú segir þeim hvað þú heitir og sýnir skilríki, til dæmis ökuskírteini eða vegabréf. Kjörstjórnin merkir við nafnið þitt og lætur þig fá kjörseðil. Láttu vita ef þú þarft spjald með blindraletri.

Í kjörklefanum

Þegar þú kemur inn í kjörklefann skaltu draga tjaldið fyrir svo enginn sjái þig kjósa. Í kjörklefanum er blýantur sem þú notar til að setja X í kassann fyrir framan þann eða þá sem þú ætlar að kjósa. Það má ekki skrifa eða teikna neitt annað á kjörseðilinn, annars er hann ógildur. Þegar þú hefur sett X brýtur þú kjörseðilinn saman og ferð út úr kjörklefanum.

Við kjörkassann

Fyrir utan kjörklefann er kassi fyrir kjörseðla. Settu þinn kjörseðil í kassann. Þá hefur þú kosið í forsetakosningunum árið 2024. Það má enginn sjá hvernig þú kaust.

Get ég fengið aðstoð við að kjósa?

Þú átt rétt á aðstoð við að kjósa og þarft ekki að segja hvers vegna. Þú getur beðið kjörstjórnina um aðstoð, eða haft eigin aðstoðarmanneskju með þér. Aðstoðarmanneskjan má ekki vera sjálf í framboði eða mjög skyld frambjóðanda, og má ekki aðstoða fleiri en 3 í hverjum kosningum. Sá sem aðstoðar þig má ekki segja neinum hvernig þú kaust.

Ég kemst ekki 1. júní til að kjósa. Hvað á ég að gera?

Það er hægt að kjósa fyrir 1. júní á sérstökum stöðum — það kallast að kjósa utan kjörfundar. Það hentar mörgum, til dæmis þeim sem eru upptekin eða vilja ekki bíða.

Hvernig kýs ég utan kjörfundar á Íslandi?

Ef þú kemst ekki á þinn kjörstað 1. júní máttu kjósa utan kjörfundar hjá sýslumanni á þínu svæði. Á Höfuðborgarsvæðinu er kosið utan kjörfundar á 1. hæð í Holtagörðum, opið frá 10 á morgnana til 10 á kvöldin. Mundu að hafa með þér skilríki.

Hvernig kýs ég utan kjörfundar í útlöndum?

Þú getur kosið á skrifstofu sendiráðs eða ræðismanns. Utanríkisráðuneytið skipuleggur kosninguna og auglýsir hvar og hvenær er hægt að kjósa. Til að kjósa þarftu að mæta á kjörstað, sýna skilríki, og starfsmaður tekur á móti þér og merkir við þig.

Hvern á ég að kjósa?

Bara þú getur ákveðið hvern þú kýst. Áður en þú kýst er gott að kynna sér frambjóðendur. Átak er félag fólks með þroskahömlun og hefur tekið viðtöl við 7 frambjóðendur: Arnar Þór Jónsson, Baldur Þórhallsson, Halla Hrund Logadóttir, Halla Tómasdóttir, Jón Gnarr, Katrín Jakobsdóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir. Það gæti hjálpað þér að taka ákvörðun um hvern þú kýst.